

Finance Business Partner | Embla Medical
Global Finance Business Partnering teymi Embla Medical leitar að reyndum og metnaðarfullum Finance Business Partner til að styðja við Global Operations. Í þessu hlutverki vinnur þú náið með stjórnendum þvert á fyrirtækið við fjárhagsgreiningar, spár og áætlanagerðir sem styður við árangur og upplýsta ákvarðanatöku. Hér gefst þér tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í alþjóðlegu umhverfi hjá fyrirtæki með skýran og mikilvægan tilgang.
Starfið getur verið staðsett í Reykjavík, Hollandi (Eindhoven) eða í Póllandi (Szczecin).
Sem Finance Business Partner gegnir þú lykilhlutverki í að efla fjárhagslegan árangur, greina tækifæri til umbóta og veita stefnumótandi innsýn sem styður rekstrarlegar og fjárhagslegar ákvarðanir innan Global Operations:
-
Greina og túlka fjárhagsleg gögn til að greina þróun, finna tækifæri til hagræðingar og styðja við rekstrarumbætur í samstarfi við stjórnendur.
-
Leiða ferli fjárhagsáætlana og spágerðar.
-
Vinna náið með stjórnendum að því að greina áskoranir og tækifæri í rekstri og veita fjárhagslega innsýn sem styður hagkvæma og upplýsta ákvarðanatöku.
-
Styðja við mánaðar- og árslokauppgjör, þar með talið frávikagreiningar og fjárhagsskýrslugerð.
-
Taka virkan þátt í stöðugum umbótum innan fjármálateymisins.
-
Háskólapróf í viðskipta-, hag- eða verkfræði.
-
Haldbær reynsla af Finance Business Partnering, Business Controlling, FP&A eða sambærilegum störfum.
-
Mjög góður skilningur á kostnaðarbókhaldi og fjárhagsgreiningu.
-
Mjög góð Excel-kunnátta og þekking á fjárhagslegum áætlanakerfum er kostur.
-
Hæfni til að tjá sig reiprennandi á ensku er skilyrði.
-
Öflug greiningarhæfni og hæfni til að leysa vandamál, ásamt getu til að miðla flóknum fjárhagsupplýsingum á skýran hátt til hagsmunaaðila utan fjármálasviðs.
-
Góð verkefnastjórnunarhæfni, getu til að forgangsraða í fjölbreyttu verkefnaumhverfi, sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og auga fyrir smáatriðum.
- Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
-
Öflugt félagslíf
- Alþjóðlegt starfsumhverfi með sterkum liðsanda og sameiginlegan tilgang
-
Tækifæri til náms, vaxtar og faglegrar þróunar
-
Tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanatöku og leggja beint af mörkum til árangurs í rekstri
-
Vinnustaður sem hefur það að markmiði að bæta hreyfanleika og lífsgæði fólks
English
Icelandic










