Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Forstöðumaður viðskiptaumsjónar

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga í starf forstöðumanns viðskiptaumsjónar á sviði markaðsviðskipta.

Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.

Deild viðskiptaumsjónar er ein af fjórum deildum á sviðinu og sinnir fjölbreyttum bakvinnsluverkefnum m.a. frágangi viðskipta vegna lánamála ríkisins, gjaldeyrisviðskipta og markaðsaðgerða Seðlabankans. Einnig veitir deildin ríkisstofnunum almenna bankaþjónustu, hefur umsjón með verðbréfavörslu, kortauppgjöri og ber ábyrgð á Swift málefnum bankans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á verkefnum deildarinnar, innleiðingu og faglegri þróun þeirra.
  • Dagleg verkstjórn og mótun sterkrar liðsheildar.
  • Annast innlent og erlent verðbréfauppgjör og verðbréfavörslu.
  • Ábyrgð á greiðslumiðlun í íslenskum krónum og erlendum myntum.
  • Eftirlit með vöktun og rekstri kortauppgjörskerfis.
  • Umsjón með bankaþjónustu fyrir ríki og ríkisstofnanir.
  • Þátttaka í innra starfi Seðlabankans, stefnumótun og áætlanagerð.
  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði eða sambærilegum greinum.
  • Sterkir leiðtogahæfileikar.
  • Reynsla af daglegri verkstjórn og mannaforráðum æskileg.
  • Viðeigandi þekking og reynsla af fjármálamarkaði t.d. úr viðskiptaumsjón eða bakvinnslustörfum.
  • Góð reynsla og/eða þekking á innlendri og erlendri greiðslumiðlun, Swift-kerfum, verðbréfauppgjöri og vörslu verðbréfa.
  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
  • Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
Advertisement published21. May 2026
Application deadline3. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.SwiftPathCreated with Sketch.Business administrator
Work environment
Professions
Job Tags