

Félagsráðgjafi í félagsráðgjafaþjónustu
Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum félagsráðgjafa til starfa á Landspítala. Viðkomandi þarf að búa yfir færni til að vinna að lausnum og hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.
Um er að ræða faglega krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir félagsráðgjafa sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Starfið felur í sér vinnu við bráðaaðstæður þar sem reynir á faglegt mat, skjót viðbrögð og hæfni til að veita einstaklingum og fjölskyldum stuðning við erfiðar aðstæður. Lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu, fjölskyldumiðaða nálgun og gagnreynd vinnubrögð.
Landspítali býður upp á góða aðlögun fyrir nýútskrifaða félagsráðgjafa sem og reyndari með markvissri handleiðslu og fræðslu. Á Landspítala eru fjölbreytt tækifæri til sí- og endurmenntunar.
Á Landspítala starfa um 50 félagsráðgjafar í þverfaglegum teymum sem sinna margþættri þjónustu við sjúklinga á mismunandi deildum. Landspítali er fjölskylduvænn vinnustaður og býður upp á heilsueflandi vinnuumhverfi, samgöngusamninga og 36 stunda vinnuviku.
Starfið er laust 15. desember 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Icelandic
English





























