

Ertu Lyfjafræðingur, viltu koma í Lyfjuliðið?
Viltu starfa með það að markmiði alla daga að lengja líf og auka lífsgæði Íslendinga? Við leitum að jákvæðum, þjónustulunduðum og lausnamiðuðum lyfjafræðingi til starfa í verslunum Lyfju. Starfið er lifandi, skemmtilegt og krefjandi.
Tækifæri og sveigjanleiki
Um er að ræða flakkarastarf, sem þýðir að þú færð að kynnast ólíkum starfsstöðvum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið ef hentar. Starfið hentar vel fyrir þá sem vilja fjölbreytni og sveigjanleika í starfi.
Hvað felst í starfinu?
-
Fagleg ráðgjöf um lyf og notkun þeirra. Þú ert fyrsti viðmælandi margra sem leita upplýsinga og stuðnings.
-
Afgreiðsla lyfseðla með skýrum verkferlum og góðu samstarfi.
-
Umsjón með afgreiðslu viðskiptavina, pöntunum og frágangi lyfja.
Hver ert þú?
-
Þú ert með háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
-
Góð þjónustulund, góð mannleg samskipti og fagleg framkoma eru þínar sterku hliðar.
-
Þú ert áreiðanlegur og skipulagður lyfjafræðingur sem sækist eftir fjölbreyttum verkefnum og teymisvinnu.
Umsóknarfrestur er til og með 27. júní
Nánari upplýsingar veitir Anna Sólmundsdóttir, lyfjafræðingur og sérfræðingur á mannauðssviði, [email protected], sími: 693-2216.
Við förum með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarupplýsingar.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og auka lífsgæði. Við leggjum áherslu á að skapa eftirsóknarverðan vinnustað þar sem góður starfsandi, hæfni og þekking starfsfólks nýtist sem best. Við bjóðum upp á faglega fræðslu og leggjum áherslu á jafna möguleika til starfsþróunar. Auk þess styðjum við starfsfólk og viðskiptavini á sinni heilsuvegferð og leggjum áherslu á sveigjanleika og jafnvægi vinnu og einkalífs.













