
Billboard og Buzz
Billboard umhverfismiðlar laga sig að þínum þörfum, hvort sem þær tengjast uppbyggingu vörumerkja, þar sem endurtekning skilaboða yfir langan tíma skiptir mestu máli, eða markaðssetningu til skemmri tíma, þar sem öllu skiptir að fá fólk til að bregðast hratt við. Þín markmið skipta okkur máli og við hjálpum þér að ná þeim.
Umhverfismiðlar eru áhrifaríkur og hagkvæmur auglýsingakostur sem býður upp á ótal tækifæri til að ná til neytenda á ferð um höfuðborgarsvæðið og nágrenni. Fólk fer oftast sömu leiðirnar og rannsóknir sýna að neytendur sem sjá sama vörumerkið endurtekið eru líklegir til að velja það umfram önnur. Dreifing um allt höfuðborgarsvæðið gefur því möguleika á mikilli dekkun – og tíðni á stuttum tíma.

Ert þú söludrifinn einstaklingur?
Billboard og Buzz umhverfismiðlar leita að öflugum og drífandi einstaklingi til að styrkja söludeild fyrirtækisins.
Við leitum að harðduglegum og metnaðarfullum viðskiptastjóra sem tekur ábyrgð á eigin verkefnum og hefur metnað til að ná árangri í starfi.
Starfið felur í sér náið samstarf með markaðsstjórum og stjórnendum fyrirtækja og finna með þeim leiðir til að láta auglýsingamiðlana Billboard og Buzz skila sem bestum árangri í þeirra markaðsstarfi.
Ef þú brennur fyrir sölu og átt auðvelt með að leita tækifæra og lausna, þá gæti þetta starf hentað þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Auglýsingasala til fyrirtækja í gegnum símtöl og fundi
- Að afla nýrra viðskiptavina sem og að styrkja núverandi viðskiptasambönd
- Umsjón með auglýsingaáætlunum viðskiptavina
- Útfæra góðar hugmyndir með viðskiptavinum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í tali og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Heiðarleiki, stundvísi og reglusemi
- Reynsla og áhugi á íslenskum auglýsingamarkaði er kostur
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Advertisement published13. March 2025
Application deadline20. March 2025
Language skills

Required

Required
Location
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsAmbitionIndependencePunctualCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Temporary - Móttaka / Front Desk
Rent.is

Sumarstörf í BYKO Leigu
BYKO Leiga og fagverslun

Söluráðgjafar óskast í verslanir Rammagerðarinnar.
Rammagerðin

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Sölustarf í persónu (Face to face) - Sumarstarf
Takk ehf

Sumarstarf - Akstursstýring
Torcargo

Sumarstarf á Þjónustusviði - Farmskrárfulltrúi
Torcargo

Viðskiptastjóri álglugga
Kambar Byggingavörur ehf

Sumarstörf Icewear - Höfuðborgarsvæðið
ICEWEAR

Bókari óskast -50% hlutastarf
Trefjar ehf

Sölumaður á hjólbarðaverkstæði
Vélar og Dekk ehf.

Sölufulltrúi í sumar
Myllan