Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Deildarstjóri Sölu og þjónustu ON

Orka náttúrunnar leitar að framsæknum leiðtoga í hlutverk deildarstjóra Sölu og þjónustu.

Sem deildarstjóri munt þú bera ábyrgð á fjölbreyttum lausnum á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði og gegna lykilhlutverki í áherslum ON er varða framlínuþjónustu og sölu.

ON starfar á kvikum samkeppnismarkaði og selur raforku til heimila og fyrirtækja ásamt því að bjóða upp á fjölbreyttar hleðslulausnir með það að markmiði að stuðla að orkuskiptum í samgöngum.

Síðustu sex ár hefur ánægja viðskiptavina ON mælst hæst meðal raforkusala í Íslensku ánægjuvoginni. Þann heiður þökkum við ekki síst því öfluga teymi sem þú munt leiða í hlutverki deildarstjóra Sölu og þjónustu.

Ef þú hugsar í snjöllum lausnum, býrð yfir leiðtogafærni og hefur ástríðu fyrir virðissköpun í þágu viðskiptavina þá gæti þetta verið draumastarfið þitt.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í hlutverki deildarstjóra felst m.a.:

  • Ábyrgð á að leiða framúrskarandi teymi til árangurs
  • Dagleg stýring og mannauðsmál með áherslu á valdeflingu og vöxt starfsfólks
  • Ábyrgð á sölu- og þjónustulausnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki
  • Sala á raforku, hleðslulausnum og aðgangi að almenningshleðsluneti ON
  • Að innleiða framúrskarandi þjónustustig sem leggur grunn að ánægju viðskiptavina ON
  • Áætlunargerð í sölu og þjónustumálum
  • Virk þátttaka í almennu starfi, markaðsmálum og stefnumótandi ákvörðunum sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir:

  • Marktækri reynslu af sölu- og/eða þjónustustörfum
  • Leiðtogahæfni og reynslu af því að byggja upp markmiðadrifin teymi
  • Greiningafærni og hæfni við fjölbreytta framsetningu upplýsinga
  • Umbótahugsun og hugmyndaauðgi
  • Framúrskarandi samskiptafærni
  • Frumkvæði, metnaði og drifkrafti
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Advertisement published29. August 2025
Application deadline14. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human resourcesPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Ambition
Work environment
Professions
Job Tags