COWI
COWI
COWI

Deildarstjóri lagna og loftræsinga / Head of Discipline HVAC

Ertu reynslumikill sérfræðingur/leiðtogi með brennandi áhuga á lögnum og loftræsingum? Langar þig að nýta faglega þekkingu þína til að leiða teymi sérfræðinga, leiða þróun fagsviðsins hjá okkur og taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu sterkrar deildar til framtíðar? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið nánar.

Helstu verkefni og ábyrgð

COWI á Íslandi leitar að deildarstjóra lagna og loftræsinga (e. Head of Discipline HVAC) til að leiða öflugt teymi sérfræðinga sem vinnur að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði bygginga, iðnaðar og orkumannvirkja. 

Sem deildarstjóri leiðir þú þróun deildarinnar, styður við liðsheild, vöxt og þróun starfsfólks og mótar framtíð þjónustu okkar á sviði lagna og loftræsinga. Þetta er hlutverk fyrir einstakling sem hefur áhuga á að sameina sterkan faglegan grunn, leiðtogahlutverk og þátttöku í spennandi verkefnum fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. 

Deildin kemur að verkefnum sem fela meðal annars í sér varma- og straumfræðigreiningar, kerfis- og þrívíddarhönnun auk gerðar upplýsingarlíkana (BIM) fyrir lagna- og loftræsikerfi. Það sem gerir starf hjá COWI sérstaklega áhugavert er að við höfum aðgang að víðtæku alþjóðlegu neti sérfræðinga. Þannig gefst tækifæri til að vinna náið með sérfræðingum víða um heim og nýta þekkingu sem nær langt út fyrir íslenskan markað. Verkefnastaðan okkar er mjög góð og við stefnum að því að efla frekar HVAC deildina okkar á Íslandi.

Helstu verkefni eru:

  • Dagleg stýring deildarinnar og verkefni tengd mannauði, starfsþróun, mannaflaáætlunum og álagsdreifingu. 
  • Að leiða, styðja og þróa starfsfólk deildarinnar þannig að það fái notið styrkleika sinna og náð árangri í starfi.  
  • Að byggja upp og viðhalda sterkum viðskiptatengslum í samstarfi við aðra stjórnendur COWI. 
  • Að byggja upp og efla samstarf í verkefnum við aðrar deildir COWI, bæði innanlands og á öðrum mörkuðum. 
  • Verkefnastjórn, hönnunarstjórn, verkefnavinna ásamt þátttöku í gerð samninga, kostnaðaráætlana og verkáætlana. 
  • Eftirfylgni verkefna og stuðningur við árangursríka framkvæmd þeirra.
Menntunar- og hæfniskröfur

COWI er þekkingarfyrirtæki og byggjum við reksturinn á þekkingu og hæfni fólksins okkar. Til að ná árangri í þessari stöðu leitum við að aðila sem kann að greina tækifærin og grípa þau, hefur gaman af því að vinna í skilvirku teymi þvert á deildir og landamæri og er opinn fyrir nýjum áskorunum.

Að auki erum við að leitast eftir:

  • Háskólamenntun eða aðra viðeigandi menntun á sviði verk- eða tæknifræði.
  • Yfirgripsmikilli reynslu á sviði lagna og loftræsinga, að lágmarki 10 ár. 
  • Reynslu af stjórnun, verkefnastjórnun og/eða leiðtogahlutverki. 
  • Góðri íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti. 
  • Frumkvæði, jákvæðu viðhorfi og sterkri samskiptahæfni. 
  • Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum.
Fríðindi í starfi

Við bjóðum líka uppá

  • Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika samhliða vinnu á starfsstöð.
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrki.
  • Starfsmannafélag með fjölbreyttum viðburðum yfir árið.
  • Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
  • Starfsþróunarmöguleika innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
  • Árlegt heilsufarsmat.
Advertisement published12. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Engineer
Work environment
Professions
Job Tags