Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Sérfræðingur í tækniþróun og nýsköpun

Hefur þú áhuga á nýsköpun í orkugeiranum?

Við leitum að sérfræðingi sem vill greina tækifæri, þróa nýjar lausnir og koma þeim í framkvæmd þar sem þær skapa mælanlegt virði fyrir rekstur virkjana ON.

Starfið tilheyrir Tækniþróun, deild þar sem unnið er að þróunar- og fjárfestingarverkefnum, forhönnun og umbótum sem móta núverandi rekstur og framtíð virkjana ON.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérfræðingur í tækniþróun og nýsköpun tengir saman tæknilega þekkingu, greiningar, líkön og nýja tækni til að greina tækifæri, þróa lausnir og styðja við innleiðingu umbóta í rekstri.

Í hlutverkinu munt þú vinna með nýjar tæknilausnir, gagnanýtingu, sjálfvirknivæðingu og gervigreind þar sem þær skapa aukið virði fyrir rekstur virkjana.

Þú munt jafnframt sinna rekstrargreiningum og taka þátt í fjölbreyttum þróunar- og nýsköpunarverkefnum sem snerta flesta anga virkjanarekstursins.

Starfið býður upp á tækifæri til að vinna að verkefnum allt frá frumhugmynd og tæknilegri greiningu til prófana, mats og innleiðingar, í nánu samstarfi við sérfræðinga og teymi þvert á fyrirtækið.

Ef þú vilt nýta tækni og nýsköpun til að vinna að umbótum á starfsemi virkjana þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking á jarðvarma, orkuframleiðslu, tækniþróun eða nýsköpun í tæknilegu umhverfi
  • Hæfni til að greina flókin tæknileg og rekstrarleg viðfangsefni og styðja ákvarðanatöku með gögnum og faglegu mati
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna með fjölbreytt og ómótuð verkefni
  • Góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka faghópa
  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði verkfræði, tæknifræði, raunvísinda eða skyldra greina

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Advertisement published9. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Nesjavallavirkjun 170925, 801 Selfoss
Hellisheiðavirkjun
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Automation
Work environment
Professions
Job Tags