Bláskógaskóli Laugarvatni
Bláskógaskóli Laugarvatni
Bláskógaskóli Laugarvatni

Deildarstjóri

Leikskóladeild Bláskógaskóla auglýsir eftir metnaðarfullum deildarstjóra til starfa í 100% stöðu.

Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og situr í stjórnendateymi leikskóladeildarinnar. Hann starfar samkvæmt stefnumörkun skólans sem tekur meðal annars mið af skólastefnu Bláskógabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Í leikskólastarfinu í Bláskógaskóla á Laugarvatni er lögð rík áhersla á lýðræði, félagsfærni, samvinnu, útinám og samstarf milli skólastiga.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags leikskólakennara en tímabundin viðbótarlaun greiðast vegna átaksverkefnis til að fjölga leikskólakennurum. Umsóknum fylgir yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.

Nánari upplýsingar veitir Lieselot Simoen leikskólastjóri í síma 480-3051.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkstjórn á deildinni og ábyrgð á upplýsingamiðlun.
  • Tryggja að sérhvert leikskólabarn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
  • Tryggja að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra. 
  • Þátttaka í gerð skólanámskrár, starfsáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum. 
  • Umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna.
  • Skipulagning samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni.
  • Stýra deildarfundum og skipuleggja undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara, sbr. lög nr. 95/2019, III kafli 9. grein og IV kafli 20. grein.
  • Menntun og/eða reynsla í stjórnun æskileg.
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni og áhugi í starfi með börnum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni í ræðu og riti.
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Fríðindi í starfi
  • Tímabundin viðbótarlaun
  • Yfirvinnugreiðslur (6 klst.) 
  • Ívilnun vegna aksturs 
  • Fatastyrkur 
  • Frítt fæði 
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Sund/líkamsræktarkort Bláskógabyggðar
  • Skapandi starfsumhverfi 
Advertisement published2. October 2025
Application deadline13. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lindarbraut 6, 840 Laugarvatni
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags