Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Leikskólinn Sumarhús óskar eftir aðstoðarmanni í eldhús

Leikskólinn Sumarhús, nýr leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða aðstoðarmann í eldhús. Um 100% framtíðarstarf er að ræða. Aðstoðarmaður í eldhúsi vinnur undir leiðsögn matreiðslumanns.

Í leikskólanum er gert ráð fyrir 150 börnum á aldrinum 1-5 ára og mun skólinn starfa eftir heilsustefnunni þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls verður í forgrunni. Við leitum að einstaklingi sem er samviskusamur, stundvís og langar að bætast í okkar frábæra starfsmannahóp.

Starfið er laust frá 1. desember 2025.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Frágangur og þrif í eldhúsi

  • Sér um þvott leikskólans 

  • Aðstoð við matseld og undirbúning máltíða

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við matráð

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta
  • Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
  • Góð samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót  
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort 
  • 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega.  Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar sem eru 10 á ári. 
Advertisement published1. October 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Vefarastræti 2-6, 270 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags