Leikskólinn Hulduheimar
Leikskólinn Hulduheimar
Leikskólinn Hulduheimar

Deildarstjórar

Leikskólinn Hulduheimar auglýsir eftir deildarstjórum frá og með 7. ágúst 2025.

Leitað er að deildarstjórum með leiðtogahæfileika sem eru tilbúnir að taka þátt í að leiða áfram og þróa metnaðarfullt og faglegt starf leikskólans þar sem lærdómssamfélag, samvinna, traust og gleði ríkir.

Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og situr í stjórnendateymi leikskólans. Hann starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Áherslur Hulduheima eru á leik barna, félagslega færni, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og hvetjandi námsumhverfi. Leiðarljós leikskólans eru Virðing - Lýðræði – Samfélag.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar 
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum. 
  • Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra. 
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum. 
  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni.
  • Situr foreldrafundi, starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.  
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara æskilegt
  • Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.  
  • Reynsla og/eða menntun í stjórnun æskileg. 
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.  
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  
  • Góð íslenskukunnátta æskileg. 
Fríðindi í starfi
  • Afsláttarkort Árborgar
  • Stytting vinnuvikunnar
Advertisement published9. April 2025
Application deadline23. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Erlurimi 1, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Punctual
Work environment
Professions
Job Tags