

Borstjóri og Bormaður
Árni ehf., leitar af Borstjóra og Bormanni.
Við erum með langtíma verkefni við sjótökuholur í Vestmanneyjum, sem og önnur borverkefni. Verkefnin geta því verið langt frá heimili, þannig að gista frá heimili getur þurft í u.m.þ.b 10 daga í senn. Starfstöð Árna ehf., er staðsett á Flúðum.
Við leitum af einstaklingum sem geta styrkt liðið okkar. Annarsvega borstjóra og hinsvegar bormanni í teymi sem vinnur undir borstjóra, þar sem reynsla af borun er ekki skilyrði, en vilji og áhugi á að læra. Möguleiki er á að vinna sig upp í starfi.
Jarðboranir.
Bormaður- Hæfniskröfur:
· Vinnuvélaréttindi
· Bílpróf
· Líkamlega hraust/hraustur
· Jákvæðni
· Stundvísi
· Dvalið frá heimili í viku til tíu daga í senn
· Vilja og getu til að læra
· Meirapróf er kostur
· Rafsuðuhæfni er kostur
Borstjóri – Hæfniskröfur:
· Reynsla af borun
· Reynsla af verkstjórn og mannaforráð
· Vinnuvélarréttindi
· Meira próf
· Rafsuðu kunnátta
· Íslensku kunnátta
· Reglusemi, jákvæðni og stundvísi
· Líkamlegt hreysti
· Dvalið frá heimili í viku til tíu daga í senn
· Menntun í vélvirkjun, bifvélavirkjun eða málmsmíði er kostur







