
Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg
Brimborg er sölu- og þjónustuaðili Volvo og Polestar á Íslandi.
Volvo og Polestar eru framleiðendur hágæða bíla með afburða aksturseiginleika.
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims en auk Volvo og Polestar hefur Brimborg umboð fyrir Ford, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum auk hágæða hjólbarða frá Nokian.
Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, bílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.

Bifvélavirki fyrir Volvo og Polestar
Brimborg óskar eftir hæfileikaríkum og metnaðarfullum bifvélavirkja til starfa á verkstæði Volvo og Polestar að Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér bilanagreiningu og viðgerðir á Volvo og Polestar bifreiðum.
Við leitum að einstaklingi sem?
- Er með sveinspróf og/eða meistarapróf í bifvélavirkjun eða mikla reynslu af viðgerðum
- Er skipulagður, samviskusamur og metnaðarfullur
- Nýtur sín í krefjandi og markmiðadrifnu umhverfi
- Hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu og vexti vörumerkjunum Volvo og Polestar á Íslandi.
Við bjóðum uppá
- Að vinna með nýjustu bíltækni í framúrskarandi vinnuaðstöðu.
- Lifandi og spennandi starf þar sem er unnið við nýjustu bíltækni með háþróuðum tækjabúnaði sem eykur skilvirkni og léttir störfin
- Skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá metnaðarfullu fyrirtæki
- Öflugt starfsmannafélag með fjölbreyttu félagslífi og viðburðum
- Fjölskylduvænan vinnustað með styttri opnunartíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining og viðgerðir á Volvo og Polestar bílum
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi í bifvélavirkjun eða sambærileg reynsla af bílaviðgerðum
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Advertisement published26. August 2026
Application deadline21. September 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
MechanicAuto repairsProactiveDriver's licenceConscientiousPunctualIndustrial mechanicsCustomer service
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Vaktavinna í viðhaldsteymi
First Water

Sérfræðingur á þjónustu og varahlutasviði
Bílabúð Benna

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Starfsmenn á vélaverkstæði
Vélar og skip ehf.

Dekkjaþjónusta í dekkjatörn
Max1 Bílavaktin

Bifvélavirki eða starfsfólk með reynslu
MAX1 | VÉLALAND

Verkstjóri veitukerfis í Vestmannaeyjum
HS Veitur hf

Maintenance Technician | Össur
Embla Medical | Össur

Óskum eftir Bifvélavirkja i fullt starf
Bifreiðaverkstæðið Toppur ehf

Smiður
Félagsstofnun stúdenta

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki - Car Mechanic
Íslenska gámafélagið ehf.