Bílabúð Benna
Bílabúð Benna

Sérfræðingur á þjónustu og varahlutasviði

Bílabúð Benna leitar að skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi í fjölbreytt starf þar sem hraði, nákvæmni og góð samskipti skipta miklu máli.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd varahlutum, verkstæði, tjónum og þjónustu við viðskiptavini. Viðkomandi verður mikilvægur hlekkur á milli verkstæðis, varahlutaverslunar, birgja og viðskiptavina og fær tækifæri til að kynnast fjölbreyttum verkefnum innan rekstrarins.

Helstu verkefni

  • Umsjón með afgreiðslu varahluta fyrir verkstæði, þar með talið aðkeyptum vörum.
  • Gera tilboð í tjón fyrir réttingaverkstæði og stærri viðskiptavini.
  • Styðja við verkstæðismóttöku Porsche og KGM.
  • Samskipti við framleiðendur.

Við leitum að þér sem

  • Ert skipulagður, nákvæm/ur og lausnamiðað/ur.
  • Átt auðvelt með að halda utan um mörg verkefni í einu.
  • Hefur ríka þjónustulund og hefur gaman af samskiptum við fólk.
  • Ert sjálfstæður í vinnubrögðum en jafnframt góður liðsfélagi.
  • Hefur áhuga á bílum, varahlutum og verkstæðisrekstri.
  • Hefur góða tölvu- og samskiptahæfni á íslensku og ensku.
  • Hefur metnað til að læra og takast á við fjölbreytt verkefni.

Reynsla af varahlutum, verkstæðisstarfi, tjónamálum eða bílgreininni er kostur en ekki skilyrði. Mikilvægast er að þú sért jákvæð/ur, úrræðagóð/ur og tilbúinn að taka þátt í öflugu teymi.

Hjá Bílabúð Benna færð þú

  • Fjölbreytt og krefjandi starf í spennandi umhverfi.
  • Tækifæri til að vinna með þekktum bílamerkjum og fjölbreyttum verkefnum.
  • Gott tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.
  • Öflugan hóp samstarfsfólks og gott starfsumhverfi.
Advertisement published28. August 2026
Application deadline8. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Krókháls 9, 113 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags