

Aðstoðarpródúsent
RÚV leitar að aðstoðarpródúsent á fréttastofu. Aðstoðarpródúsent er hluti af teymi fréttastofunnar sem stýrir fréttavinnslu og aðstoðar framleiðslu- og útsendingarstjóra sem og fréttamenn.
Starfið hentar vel nýútskrifuðum eða þeim sem eru að hefja feril sinn í fjölmiðlum og hafa áhuga á fréttum og dagskrárgerð í sjónvarpi og útvarpi.
Um er að ræða vaktavinnu á lifandi vinnustað.
· Aðstoð við fréttavinnslu og útsendingu í sjónvarpi og útvarpi.
· Aðstoð við skipulagningu og efnisöflun.
· Umsjón með inntöku, skráningu og varðveislu myndefnis (efnisstjórnun).
· Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, auk áhuga á fjölmiðlum.
· Góð tækni- og tölvukunnátta.
· Góð íslenskukunnátta.
· Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
· Geta til að vinna undir álagi.
Icelandic