Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Aðstoðarmanneskja í þvottahús rannsóknar

Gæðarannsóknardeild er hluti af gæðasviði Coripharma og sér um mælingar á hráefnum sem notuð eru í lyfjaframleiðslu, sem og mælingar á framleiðsluvörum fyrirtækisins.

Við leitum að ábyrgri og nákvæmri aðstoðarmanneskju í þvottahús rannsóknarstofu. Starfið felst aðallega í þvotti á rannsóknarvörum, tiltekt og frágangi. Einnig felur starfið í sér móttöku og utanumhald á birgðum rannsóknarefna ásamt eftirliti með og stillingum á rannsóknartækjum. Um er að ræða fjölbreytt og mikilvægt hlutverk í stuðningi við daglega starfsemi rannsóknarstofa. Þjálfað verður í sértækum verkefnum.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þvottur á rannsóknarvörum
  • Fylla á birgðir á rannsóknarstofum
  • Móttaka á vörum fyrir rannsóknarstofur
  • Inn- og útskráning á rannsóknarefnum
  • Eftirlit og stillingar á rannsóknartækjum


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Mikilvægt er að umsækjandi sýni sjálfstæði og frumkvæði
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð færni í samskiptum og skipulagi


Fríðindi

  • Mötuneyti
  • Sveigjanlegur vinnutími

Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja. Hjá Coripharma starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólíka menntun og bakgrunn. Í dag starfa um 230 einstaklingar hjá fyrirtækinu.

Frá því félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari Upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2026.

Advertisement published12. December 2025
Application deadline4. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Optional
Intermediate
Location
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Cleaning
Professions
Job Tags