Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra

Rauði krossinn á Íslandi leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila til starfa sem aðstoðarmaður framkvæmdastjóra.

Um er að ræða lykilhlutverk í stjórnsýslu félagsins þar sem viðkomandi kemur til með að vinna náið með framkvæmdastjóra, stjórn félagsins og stjórnendum. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir sterkri skipulagshæfni, getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi og getu til að fylgja verkefnum eftir af nákvæmni og fagmennsku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við framkvæmdastjóra í daglegum störfum.
  • Undirbúningur og umsjón með fundum og fundargerðum stjórnar og annarra lykilfunda.
  • Eftirfylgni með framkvæmd ákvarðana stjórnar í samráði við framkvæmdastjóra.
  • Yfirumsjón með skjalastjórnun og skjalakerfi félagsins og þróun verklags á því sviði.
  • Aðstoð við samningagerð, lögfræðileg álitaefni og önnur verkefni sem tengjast starfsemi félagsins.
  • Utanumhald á ferðabókunum fyrir skrifstofu framkvæmdastjóra.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun stjórnsýslu og verklags.
  • Önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði er kostur.
  • Reynsla af sambærilegu starfi eða störfum innan Rauða krossins kostur.
  • Reynsla af stjórnsýslu, verkefnastjórnun eða sambærilegum störfum er kostur.
  • Mjög góð skipulagshæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt.
  • Frumkvæði, nákvæmni og rík þjónustulund.
  • Framúrskarandi hæfni í ritun og framsetningu á íslensku og góð kunnátta í ensku.
  • Góð þekking á upplýsingatækni og reynsla af stafrænum skjalakerfum.
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og rík hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
Við bjóðum upp á
  • Hvetjandi og samfélagslega meðvitaðan vinnustað.
  • Niðurgreiddan hádegismat.
  • Styrk til heilsueflingar og samgöngustyrk.
  • Tækifæri til að vinna að málefnum sem skipta máli og hafa raunveruleg áhrif.
Advertisement published24. August 2026
Application deadline7. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.Cand.jur.PathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags