

A4 Kringlan - Ert þú öflugur sölufulltrúi?
A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í verslun okkar Kringlunni. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, afgreiðsla á kassa, fylla á vörur sem og framstillingar í búðinni.
Um er að ræða hlutastarf þar sem unnið er alla virka daga frá 13:00 til 18:00.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni:
- Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
- Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
- Önnur almenn verslunarstörf
Hæfniskröfur og reynsla:
- Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
- Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
- Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
- Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
- Þekking á hannyrðum kostur
- 18 ára og eldri
- Íslenskukunnátta
Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að sækja um starfið, óháð kyni.
Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjórinn Anna í síma 580-0050.
A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.












