
Iðan fræðslusetur

Vaktstjóranámskeið - leiðtogahæfni og samskipti
Góður vaktstjóri þarf að geta leitt fólk, átt skýr samskipti og brugðist við ólíkum aðstæðum í daglegu starfi. Á námskeiðinu er farið yfir helstu þætti góðrar stjórnunar og hvernig vaktstjórar geta styrkt sig í hlutverki sínu. Áhersla er lögð á mannlega þáttinn í stjórnun, breytt viðhorf til vinnu og þær væntingar sem starfsfólk gerir til stjórnenda í dag. Sérstaklega er fjallað um sýn og væntingar ungs fólks og hvernig stjórnunarhættir og samskipti geta tekið mið af þeim. Námskeiðið byggir að stórum hluta á samtölum og rökræðum þar sem þátttakendur deila reynslu, skoða ólíkar aðstæður og ræða hvernig og hvers vegna stjórnendur velja ákveðnar leiðir í starfi.
Fyrir hverja:
Vaktstjóra, þjónustufólk og aðra starfsmenn í veitinga- og þjónustugeiranum sem sinna eða stefna á stjórnunarhlutverk og vilja efla leiðtogahæfni sína.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist aukinn skilning á hlutverki og ábyrgð stjórnanda og styrki hæfni sína til að leiða fólk með faglegum samskiptum og tilliti til ólíkra þarfa og væntinga starfsfólks.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hlutverk stjórnanda og helstu þætti góðrar stjórnunar
- Mannlega þáttinn í stjórnun og samskiptum
- Breytt viðhorf til vinnu og væntingar til stjórnenda
- Sýn og væntingar ungs fólks á vinnumarkaði
- Nútímalega stjórnunarhætti og beitingu þeirra í daglegu starfi
- Rökræður og samræður um „hvernig“ og „af hverju“
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu þætti góðrar stjórnunar og ábyrgð vaktstjóra
- Skilja mikilvægi mannlega þáttarins í stjórnun
- Geta tekið mið af ólíkum viðhorfum og væntingum starfsfólks
- Geta nýtt fagleg samskipti til að leiða fólk í daglegu starfi
- Geta rökstutt val á stjórnunarháttum við ólíkar aðstæður
Starts
4. Nov 2026Type
On siteTimespan
1 timesShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
Eldsmíði
Iðan fræðsluseturOn site06. Nov
Skyndihjálp á verkstað
Iðan fræðsluseturOn site04. Nov
Grunnnámskeið í blómaskreytingum
Iðan fræðsluseturOn site05. Nov
Innri úttektir
Iðan fræðsluseturOn site03. Nov
HACCP 1 – Hreinlæti og örugg meðferð matvæla
Iðan fræðsluseturOn site03. Nov
Málningaruppleysir
Iðan fræðsluseturOn site04. Nov
Ofnæmi, óþol og sérfæði í faglegri matargerð
Iðan fræðsluseturOn site03. Nov
Hinn fullkomni G&T – Bragð, jafnvægi og sköpun
Iðan fræðsluseturOn site30. Oct
HACCP kröfur um hreinlæti við lagnavinnu
Iðan fræðslusetur29. Oct
Sólpallar og skjólgirðingar
Iðan fræðsluseturOn site29. Oct
Flökun og meðhöndlun á fisk
Iðan fræðsluseturOn site29. Oct
Hnífabrýnsla
Iðan fræðsluseturOn site28. Oct