
Iðan fræðslusetur

TIG suða
Náðu tökum TIG-suðu – bókleg og verkleg þjálfun í TIG suðu
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem vilja tileinka sér grunnfærni í TIG-suðu, hvort sem þeir eru að hefja nám í iðngrein eða bæta við sig sérhæfðri verkþekkingu. Hentar sérstaklega þeim sem vinna eða hyggjast vinna við málmsuðu, viðhald eða málmsmíði.
Markmið:
Að veita þátttakendum bóklega og verklega undirstöðu í TIG-suðu, svo þeir geti unnið örugglega með ólíkum búnaði og efni við suðuvinnu.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Meðhöndlun málma fyrir og eftir suðu
- Stilling á suðuvélum og val á réttum gasi
- Mat og mæling á gasflæði
- Val og slípun suðuskauta
- Framkvæmd á einföldum TIG-suðum (t.d. stúfsuður og kverksuður)
- Öryggisatriði og meðferð rafmagnstækja við suðu
- Grunnatriði rafmagnsfræðinnar sem tengjast suðuvinnu
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta framkvæmt einfaldar TIG-suður
- Beitt viðeigandi búnaði og verklagi
- Þekkt öryggisatriði og viðhald tækja
- Nýtt þekkinguna í iðn- eða viðhaldsverkefnum
Aðrar upplýsingar:
Engar sérstakar forkröfur en grunnskilningur á iðnaðarumhverfi er kostur. Nemendur þurfa að mæta í viðeigandi vinnufatnaði. Allur nauðsynlegur búnaður og tæki verða á staðnum.
Starts
28. Oct 2026Type
On siteTimespan
2 timesShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
Hnífabrýnsla
Iðan fræðsluseturOn site28. Oct
Gæðastjórnun í byggingariðnaði
Iðan fræðsluseturOn site28. Oct
MIG/MAG suða
Iðan fræðsluseturOn site26. Oct
Grunnnámskeið í þjónustu
Iðan fræðsluseturOn site27. Oct
Lagning þakpappa
Iðan fræðsluseturOn site28. Oct
Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Iðan fræðsluseturOn site27. Oct
Grunnnámskeið í CABAS
Iðan fræðsluseturOn site27. Oct
Varðveisla eldri húsa
Iðan fræðsluseturOn site23. Oct
Endurmenntun atvinnubílstjóra - Umferðaröryggi
Iðan fræðslusetur24. Oct
PAGO byggingarsteinar
Iðan fræðsluseturOn site22. Oct