
Iðan fræðslusetur

Grunnnámskeið í CABAS
CABAS grunnnámskeiðið er þjálfun fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í CABAS / CABAS Light við CABAS skýrslugerð, hvort sem það er á málmi, lakki eða plasti. Þjálfunin er einnig hentug fyrir þá sem hafa notað CABAS áður en vilja skepra á sinni þekkingu.
Fyrir hverja:
Starfsmenn bílaverkstæða, tryggingafélaga og allir þeir sem hafa áhuga á að læra á CABAS.
Markmið:
Þeir sem sækja námskeiðið öðlast lágmarks grundvallar þekkingu á því hvernig skal framkvæma tjónamat í CABAS að loknu grunnnámi. Þáttakendur geti gert útreikninga og hafi skilning á CABAS tjónamatskerfinu.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Útskýringu á MYSBY kerfinu og aðferðafræði.
Við kynnum hvernig Cabgroup AB býr til viðgerðartíma í CABAS. Tímarnir eru búnnir til með MYSBY, sem er kerfi til að reikna út viðgerðartíma fyrir tjónaviðgerðir á ökutækjum. - Yfirlit námskeiðs í CABAS.
Við förum í gegnum kynningu okkar / notendaleiðbeiningar, sem lýsa bakgrunn og aðferðafræði.Það eru aðferðir fyrir yfirborðs-réttingu, mæliréttingu, málningar og plast útreikninga einnig gler. - Kynningu grunnþátta.
Við förum yfir grunnþætti kerfisins, þ.e. tryggingafélög, notendur og cab appið. - Aðferðafræði CABAS.
Við förum í gegnum aðgerðir og aðferðir til að takast á við möguleikana í kerfinu og því að geta reiknað rétt. - Aðrar áherslur.
Uppsetning, ljósmyndastjórnun, samskipti milli aðila. - Verkefni.
Þáttakendur fá verkefni og aðgang að kennslureikning til útreikninga.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja MYSBY kerfið og hvernig viðgerðartími er reiknaður út
- hafa öðlast grunnleikni í notkun á CABAS í tjónaskoðun
- Skylja aðferðafræði CABAS og vistun gagna
Aðrar upplýsingar:
Grunnþekking á tölvu / Windows staðall. Engin reynsla nauðsynleg af notkun CABAS.
Starts
27. Oct 2026Type
On siteTimespan
2 timesShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
MIG/MAG suða
Iðan fræðsluseturOn site26. Oct
Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Iðan fræðsluseturOn site27. Oct
Varðveisla eldri húsa
Iðan fræðsluseturOn site23. Oct
Endurmenntun atvinnubílstjóra - Umferðaröryggi
Iðan fræðslusetur24. Oct
PAGO byggingarsteinar
Iðan fræðsluseturOn site22. Oct
Frágangur varnarlaga með SIGA-efnum
Iðan fræðsluseturOn site23. Oct
Raunkostnaður útseldrar þjónustu
Iðan fræðsluseturOn site21. Oct
Grunnnámskeið í Bluebeam Revu
Iðan fræðsluseturOn site22. Oct