
Iðan fræðslusetur

Grunnnámskeið í þjónustu
Námskeiðinu er ætlað að skerpa vitund þjónustufólks á muninum á afgreiðslu og þjónustu ásamt því að auka söluvitund og þörf á skipulagi. Á námskeiðinu er farið yfir fullt af grunnþáttum þjónustu ásamt helstu atriðum sem skipta máli til að allir séu að vinna eftir sama áttavita. Á námskeiðinu er farið yfir hversvegna við seljum eitthvað en ekki bara eitthvað ásamt því að skerpa á vitund þjóna um hversu miklu máli undirbúningur skiptir. Farið er yfir skipulag er varðar hópa og hvernig best er að bera sig að varðandi nálgun og þjónustu við hina mismunandi hópa á veitingahúsum.
Fyrir hverja:
Nýtt eða óreynt þjónustufólk í veitinga- og þjónustugeiranum, sem og starfsfólk sem vill styrkja grunninn í faglegri þjónustu.
Markmið:
Að þátttakendur skilji muninn á afgreiðslu og þjónustu, efli söluvitund sína og öðlist sameiginlegan grunn í undirbúningi, skipulagi og faglegum vinnubrögðum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnþætti góðrar þjónustu og muninn á afgreiðslu og þjónustu
- Sameiginleg vinnubrögð og gildi í þjónustu
- Söluvitund og tilgang virkrar sölu
- Mikilvægi undirbúnings og skipulags
- Framkomu, ásýnd og flæði þjónustunnar
- Nálgun og þjónustu við ólíka hópa á veitingastöðum
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta útskýrt muninn á afgreiðslu og þjónustu
- Skilja tilgang og gildi virkrar sölu
- Geta undirbúið sig faglega fyrir þjónustu
- Geta unnið eftir sameiginlegum þjónustuviðmiðum
- Geta veitt skipulagða og markvissa þjónustu með tilliti til ólíkra þarfa hópa
Starts
27. Oct 2026Type
On siteTimespan
1 timesShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
TIG suða
Iðan fræðsluseturOn site28. Oct
Gæðastjórnun í byggingariðnaði
Iðan fræðsluseturOn site28. Oct
MIG/MAG suða
Iðan fræðsluseturOn site26. Oct
Lagning þakpappa
Iðan fræðsluseturOn site28. Oct
Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Iðan fræðsluseturOn site27. Oct
Grunnnámskeið í CABAS
Iðan fræðsluseturOn site27. Oct
Varðveisla eldri húsa
Iðan fræðsluseturOn site23. Oct
Endurmenntun atvinnubílstjóra - Umferðaröryggi
Iðan fræðslusetur24. Oct
PAGO byggingarsteinar
Iðan fræðsluseturOn site22. Oct
Frágangur varnarlaga með SIGA-efnum
Iðan fræðsluseturOn site23. Oct