Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Þrír heimar viskís – Skotland, Japan og Taívan

Þátttakendur öðlast aukinn skilning á því sem sameinar og aðgreinir þessar þrjár viskíhefðir og þjálfast í að smakka, lýsa og bera saman ólíkar tegundir viskís. Áhersla er lögð á hagnýta þekkingu sem nýtist meðal annars við að kynna og mæla með viskíi fyrir gesti.

Fyrir hverja:

Barþjóna, framreiðslufólk og annað fagfólk í veitinga- og þjónustugeiranum sem vinnur með eða ráðleggur um sterka drykki. Námskeiðið hentar einnig áhugafólki um viskí sem vill dýpka þekkingu sína og skilning á ólíkum viskíhefðum.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum hagnýtan skilning á því hvernig skosk viskíframleiðsla og hefðir hafa haft áhrif á þróun viskígerðar í Japan og Taívan og hvernig landafræði, loftslag, þroskun og val á tunnum móta sérkenni viskís frá hverju landi.

Með samanburðar smökkun þjálfast þátttakendur í að greina, lýsa og bera saman ólíkan viskístíl og nýta þekkinguna við kynningu og ráðleggingar til gesta.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnatriði í framleiðslu og þroskun skosks viskís
  • Hvernig skosk viskíhefð varð fyrirmynd viskíframleiðslu í Japan og Taívan
  • Þróun og sérkenni japansks viskís
  • Þróun og sérkenni viskís frá Taívan
  • Áhrif landafræði og loftslags á þroskun
  • Val á tunnum og áhrif þeirra á bragð og karakter
  • Leiðsagða samanburðarsmökkun á viskíi frá Skotlandi, Japan og Taívan
  • Að greina og lýsa helstu einkennum í ilmi, bragði og karakter
  • Hvernig nýta má þekkingu á viskíi við ráðleggingar og þjónustu við gesti

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Útskýrt grunnatriði í framleiðslu og þroskun viskís
  • Lýst áhrifum skoskrar viskíhefðar á framleiðslu í Japan og Taívan
  • Útskýrt hvernig landafræði, loftslag, þroskun og val á tunnum hafa áhrif á karakter viskís
  • Greint helstu líkindi og ólíka eiginleika skosks, japansks og taívansks viskís
  • Metið og lýst helstu einkennum í ilmi, bragði og karakter
  • Borið saman ólíkan viskístíl með markvissri smökkun
  • Mælt með viskíi út frá smekk og óskum gesta
  • Útskýrt grunnatriði í framleiðslu og þroskun viskís
  • Lýst áhrifum skoskrar viskíhefðar á framleiðslu í Japan og Taívan
  • Útskýrt hvernig landafræði, loftslag, þroskun og val á tunnum hafa áhrif á karakter viskís
  • Greint helstu líkindi og ólíka eiginleika skosks, japansks og taívansks viskís
  • Metið og lýst helstu einkennum í ilmi, bragði og karakter
  • Borið saman ólíkan viskístíl með markvissri smökkun
  • Mælt með viskíi út frá smekk og óskum gesta

Aðrar upplýsingar:

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jacek Rudecki. Jacek er sérfræðingur í viskíi og sterkum drykkjum með víðtæka reynslu úr drykkja- og veitingageiranum. Hann býr yfir öflugri alþjóðlegri fagmenntun og sérhæfingu á sviði viskís, sterkra drykkja og eimingar, meðal annars WSET Level 3 Award in Spirits, Certified Scotch Professional, General Certificate in Distilling og EBS Instructor Academy.

Hann er stofnandi Áfengisstofnunar, sjálfstæðs fræðslufyrirtækis sem sérhæfir sig í smökkunum, fagþjálfun og fræðslu um viskí og aðra sterka drykki.

Starts
2. Oct 2026
Type
On site
Timespan
1 times
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories