
Iðan fræðslusetur

Loftfrískunarkerfi - Meðhöndlun kælimiðla
Ert þú með réttindi til að meðhöndla kælimiðla bifreiða
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir þá sem gætu þurft að sinna viðhaldi og viðgerðum á loftfrískunar og varmadælukerfum bifreiða. Námskeiðið veitir réttindi til að vinna við loftfrískunarkerfi (AC) farartækja samkvæmt reglugerð 1066/2019 sem innleiðir reglugerð (ESB) nr. 517/2014 um flúoraðar gróðurhúslofttegundir (Byggt á (EB) nr. 842/2006 og (EB) nr.307/2008).
Markmið:
Markmiðið er að þátttakendur geti með öruggum hætti tappað af og fyllt á loftfrískunar og varmadælukerfi bifreiða og viti afhverju ekki megi losa kælimiðilinn út í andrúmsloftið.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Gerð og virkni loftfrískunarbúnaðar
- Reglugerðir í tengslum við kælimiðla
- Meðferð og vörslu kælimiðla
- Mengunarhættu
- Viðeigandi greiningartæki til lekaprófunar
- Grunn þætti bilanagreiningar
- Öryggi og vinnu við kælikerfi bifreiða
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Hafa grunn skilning á virkni kælikerfa
- Skilja afhverju ekki megi losa kælimiðil út í andrúmsloftið.
- Þekkja þann öryggisbúnað sem þarf til að meðhöndla kælimiðla
- Hafa grunn skilning á lekaprófun og bilanagreiningu
- Getað tengt A/C vél við bíl og þjónustað kælikerfið
Aðrar upplýsingar:
Námskeið endar með bóklegu prófi sem fram fer fram í gegnum tölvu og verklegu mati.
Námskeiðið er í samvinnu við TEXA UK og er vottað af IMI í Bretlandi.
Námskeiðið er kennt á ensku.
Starts
28. Sep 2026Type
On siteTimespan
1 timesShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
Gluggaísetningar og þéttingar
Iðan fræðsluseturOn site29. Sep
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir
Iðan fræðsluseturRemote28. Sep
Frágangur raka-, vind- og vatnsvarnarlaga með SIGA
Iðan fræðsluseturOn site25. Sep
Vatnsúðakerfi – sprinkler
Iðan fræðsluseturOn site25. Sep
Hnífabrýnsla
Iðan fræðsluseturOn site24. Sep
Töfrarnir á bak við Dumplings
Iðan fræðsluseturOn site24. Sep
Raki og mygla í húsum 1
Iðan fræðslusetur24. Sep
Ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda
Iðan fræðsluseturOn site23. Sep