Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ

Reykvíska eldhúsið - matur og mannlíf á 20. öld

Matarvenjur Reykvíkinga tóku miklum breytingum á 20. öld, í takt við tækniframfarir, breyttar aðstæður í heimilishaldi og aukin áhrif utan úr heimi. Á þessu námskeiði er rýnt í hvernig eldhúsið og daglegt matarumhverfi borgarbúa mótaðist af samfélagsbreytingum, skorti og ofgnótt, verslunarsögu og tíðaranda.

Námskeiðið samanstendur af tveimur fyrirlestrum (2 × 2 klst.) með myndasýningu og sögulegum dæmum, og leiðsagnargöngu um miðborg Reykjavíkur þar sem farið er um fæðuhring borgarinnar og stoppað við valda staði. Gangan er létt og tekur mið af fjölbreyttum þátttakendahópi.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Matarmenningu og daglegt líf Reykvíkinga á 20. öld.
  • Þróun eldhústækja, geymsluaðferða og hráefnisvinnslu.
  • Samspil matar, samfélags og menningar.
  • Reykjavík sem matar- og verslunarumhverfi í sögulegu samhengi.

Komdu huganum á hreyfingu og tryggðu þér sæti!

 

 

Starts
4. May 2026
Type
On site
Timespan
3 times
Price
32,900 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories