

Líkið í lestinni - söguleg sigling Esjunnar 1945
Á námskeiðinu er fjallað um ferð strandferðaskipsins Esju frá Reykjavík til Kaupmannahafnar og Gautaborgar sumarið 1945. Markmiðið var að flytja heim Íslendinga sem dvalið höfðu í Skandinavíu og Þýskalandi á stríðsárunum. Höfuðathygli beinist að sex farþegum á leiðinni utan eða út, þ.e. Steini Steinarr, Edith Guðmundsson, Jóni Helgasyni, Brynhildi Georgíu Björnsson, Svavari Guðnasyni og Sibil Kamban. Saga þeirra endurspeglar andstæða þætti í íslensku menningarlífi og samtímapólitík.
Sigling strandferðaskipsins Esju til finnska bæjarins Petsamo haustið 1940 er vel þekkt, en þá komst heim með skipinu stór hópur Íslendinga sem voru að flýja ófriðarbálið í Evrópu. Hliðstæð sigling Esjunnar til Kaupmannahafnar og Gautaborgar 1945 hefur ekki notið sömu athygli en markmiðið var áþekkt; að flytja heim fjölda Íslendinga sem höfðu orðið innlyksa í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi og víðar á stríðsárunum. Íslensk stjórnvöld skipulögðu ferðina og bar íslenska sendiráðið í Kaupmannahöfn hita og þunga af framkvæmdinni.
Á námskeiðinu er fjallað um
- Líf og örlög Íslendinga í Danmörku og Noregi á árum síðari heimsstyrjaldar.
- Strandferðaskipið Esju sem samfélag í hnotskurn.
- Afurðir lista- og menntafólksins sem sigldi heiman eða heim með Esjunni 1945.
Komdu huganum á hreyfingu og tryggðu þér sæti!