Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Íslenska 2 | Islandés 2

Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku. Námskeiðið er kennt af spænskumælandi kennara.

Þú byggir áfram upp grunnorðaforða og eflir sjálfstraust til að læra og nota tungumálið. Við leggjum áherslu á skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

Um námskeiðið

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að halda áfram að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Íslenska 2 er framhaldsnámskeið á stigi A1.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku.  Námsefnið Íslenska fyrir alla 2 er notað auk  aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.

Áherslur

Byggja áfram upp grunnorðaforða: Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi.

Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar setningar bæði í samtölum og frásögn.

Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.

Málfræðin er áfram kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.

Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Starts
11. May 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories