Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Fagnámskeið 1 í umönnun

Umsóknarfrestur er til 7. apríl.

Um námskeiðið

Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis símenntunar og Eflingar. Þau eru ætluð þeim sem aðstoða, annast um eða hlynna að fólki með heilsubrest, fötluðu fólki og öldruðum, hvort sem er á einkaheimilum eða stofnunum.

Á fagnámskeiðunum er lögð áhersla á námsþætti sem nýtast starfsmanninum í starfi og einkalífi. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðari af Menntamálastofnun.

Námskeiðið er kennt á íslensku. Til þess að geta tekið þátt í námskeiðinu er mælst til þess að þátttakendur séu a.m.k. á stigi A2-B1 skv. evrópska tungumálarammanum.

Sjá hér: https://www.rannis.is/media/islenskukennsla/Evropski-tungumalaramminn.pdf

Umsækjendum þessa námskeiðs stendur til boða að taka ókeypis stöðupróf hjá Mími-símenntun áður en sótt er um. Ef áhugi er fyrir hendi, hafið samband við verkefnastjóra námskeiðsins.

Uppbygging náms

Kennsla fer fram mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga milli 12:40 og 16:00

Fagnámskeiðin eru undanfari náms í Félagsliðagátt. Fagnámskeið eru tvö námskeið sem eru samanlagt 190 klukkustundir. Annars vegar fagnámskeið I (95 klukkustundir) og hins vegar fagnámskeið II (95 klukkustundir). Þátttakendur þurfa að ljúka fyrra námskeiðinu til þess að halda áfram á því seinna.

Námsgreinar

  • Almenn starfshæfni
  • Vinnustaðamenning, sjálfstyrking
  • Eldhússtöf og ræsting
  • Aðstoð og umönnun við athafnir daglegs lífs
Starts
20. Apr 2026
Type
On site
Price
46,750 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories