Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Íslenska 1 fyrir úkraínskumælandi | Ісландська 1

Á námskeiðinu stígur þú þín fyrstu og öruggu skref í að læra íslensku. Námskeiðið er kennt af úkraínskumælandi kennara.

Þú færð góðan grunn í málinu og byggir upp sjálfstraust til að halda áfram að læra. Við leggjum áherslu  á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

Um námskeiðið

Námskeiðið Íslenska 1 er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Íslenska 1 er byrjendanámskeið á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku.  Enska er notuð sem millimál í kennslunni.

Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað auk  aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. 

Áherslur

Læra stafrófið, framburð og grunnorðaforða: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku.

Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.

Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.

Málfræðin er kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.

Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Starts
25. Apr 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories