
Iðan fræðslusetur

CNC-stýrðar iðnvélar
Frá teikningu til fullsmíðaðs vinnslustykkis – náðu tökum á Inventor CAM og CNC-fræs og rennibekk.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er fyrir iðnaðarmenn, tæknimenn og aðra sem vilja öðlast grunnfærni í forritun og notkun tölvustýrðra fræsivéla og rennibekkja, með áherslu á CAM og CNC tækni.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist hagnýta færni í notkun Inventor CAM forritsins og framkvæmd verkefna í Haas CNC fræsivél og Haas CNC rennibekk – frá teikningu til framkvæmdar.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Notkun Inventor CAM viðmótsins
- Forritun með ISO- og G-kóða
- Verklega framkvæmd verkefni á Haas Desktop Mill og Lathe
- Verkfæraval og öryggisstaðla
- Færsla forrita í vélar og tenging CAD og CAM
Að loknu námskeiði á nemamdi að:
- Geta forritað einfaldar CNC vélar
- Unnið eftir öryggisreglum og réttu verklagi
- Geta nýtt Inventor CAM við hönnun og úrvinnslu
- Geta framkvæmt verkefni sjálfstætt á CNC tækjum
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur fá aðgang að öllum búnaði og tækjum. Ekki er nauðsynlegt að hafa reynslu af notkun CNC -stýrðra tækja en grunnþekking á rennismíði, fræsivinnu og teiknivinnu er kostur. Námskeiðið getur nýst fleiri iðngreinum en málm- og véltæknigreinum.
Starts
7. Dec 2026Type
On siteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
Ábyrgðarstjóri suðumála (RWC)
Iðan fræðsluseturOn site07. Dec
SketchUp 101
Iðan fræðsluseturOn site07. Dec
Þitt eigið jólakonfekt
Iðan fræðsluseturOn site05. Dec
Autodesk Inventor Essentials grunnnámskeið
Iðan fræðsluseturOn site02. Dec
Ostanámskeið með Bjarka Long
Iðan fræðsluseturOn site04. Dec
Listin að gera jólakokteil
Iðan fræðsluseturOn site04. Dec
Lagning þakpappa
Iðan fræðsluseturOn site02. Dec
Umbætur og úttektir á prentferlum
Iðan fræðsluseturRemote30. Nov