Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Ábyrgðarstjóri suðumála (RWC)

Fyrir hverja:

Stjórnendur, verkstjóra og þá sem bera ábyrgð á gæðakerfum og suðumálum. Hentar vel þeim sem bera eða munu bera ábyrgð á umsjón suðuvinnu, og þurfa breiða, hagnýta undirstöðu í efnisfræði, aðferðum, verklýsingum, vottun, skoðun og gæðastjórnun.

Markmið:

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur þá þekkingu sem þarf til að starfa sem ábyrgðarstjóri suðumála, skilja hegðun efna, velja og hanna suðuaðferðir á öruggan hátt, útbúa suðuferla sem standast kröfur, votta suðumenn, skoða og meta suðugæði, og beita EN ISO 3834 og EN 1090.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

Dagur 1 — Efnisfræði málma og suðuhæfni
Markmið: Að byggja upp hagnýtan skilning á því hvernig þau efni sem oftast koma fyrir í málmsmíði hegða sér við suðu, og hvernig eiginleikar þeirra ráða suðuhæfni.

  • Flokkun og eiginleikar kolefnis- og lágblendistáls
  • Flokkun og eiginleikar ryðfrís stáls (austenít, ferrít, dúplex)
  • Grunnmálmfræði annarra algengra suðuefna
  • Áhrif hitainngjafar, kælihraða og hitaáhrifasvæðis (HAS) á örbyggingu
  • Þættir sem hafa áhrif á suðuhæfni: kolefnisjafngildi, vetnissprungur, forhitun og millilagshiti
  • Algengir málmfræðilegir gallar og orsakir þeirra

Dagur 2 — Suðuaðferðir, hönnun og öryggi
Markmið: Að veita yfirsýn yfir helstu suðuaðferðir, öryggis- og heilbrigðisatriði fyrir málmsmíði og suðuvinnu, og hönnunarreglur á bak við stálvirkjaframkvæmdir.

  • Öryggis- og heilbrigðiskröfur sem gilda sérstaklega um málmsmíði og suðuvinnu
  • Yfirlit yfir suðuaðferðir (MMA, MIG/MAG, TIG, FCAW og fl.)
  • Meginreglur burðarþolshönnunar stáls í tengslum við suðuaðferðir
  • Lestur og túlkun á suðuteikningum og suðutáknum
  • Val á hentugum aðferðum og hönnun fyrir tiltekið verkefni

Dagur 3 — Suðuferlislýsingar og gerð WPS
Markmið: Að þjálfa hagnýta færni sem þarf til að útbúa suðuferlislýsingu (WPS) sem uppfyllir evrópska staðla.

  • Uppbygging og tilgangur suðuferlislýsingar (Welding Procedure Specification, WPS)
  • Bráðabirgða-WPS (pWPS) og vottunarskrá suðuferlis (Welding Procedure Qualification Record, WPQR)
  • Kröfur EN ISO 15609 og EN ISO 15614 um vottun suðuferla
  • Grunnbreytur og aukabreytur í suðuferli
  • Verkleg æfing: gerð WPS sem stenst kröfur fyrir tiltekna tengingu og efni

Dagur 4 — Vottun, skoðun og skaðlausar prófanir (NDT)
Markmið: Að fara yfir kröfur um vottun suðumanna og ábyrgðaraðila, þær skoðunaraðferðir sem notaðar eru til að greina og meta suðugalla og verklag.

  • Vottun suðumanna og suðuvélstjóra skv. EN ISO 9606 / EN ISO 14732
  • Flokkun suðugalla og verklags. Viðmiðunarmörk á gæðum vinnu.
  • Sjónskoðun (VT) sem grunnskoðunaraðferð
  • Yfirlit yfir skaðlausar prófanir (NDT): Litaprófun (PT), segulagnaprófun (MT), ómskoðun (UT) og geislaskoðun (RT) — meginreglur og dæmigerð notkun
  • Hlutverk skaðlausra prófana innan víðtækara gæðaeftirlits

Dagur 5 — EN ISO 3834, EN 1090 og umsjón með suðumálum
Markmið: Að draga saman efni vikunnar innan ramma EN ISO 3834 og EN 1090, og fara yfir verkefni og ábyrgð ábyrgðarstjóra suðumála.

Starts
7. Dec 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories