

Þitt eigið jólakonfekt
Fyrir hverja:
Námskeiðið er opið öllum sem hafa áhuga á súkkulaði og konfektgerð, hvort sem er til eigin ánægju eða til að útbúa fallegar og bragðgóðar jólagjafir. Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist grunnþekkingu og færni í meðhöndlun súkkulaðis og geti nýtt einfaldar aðferðir til að búa til sitt eigið konfekt.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Mismunandi tegundir súkkulaðis og meðhöndlun þeirra.
- Temprun súkkulaðis.
- Gerð og samsetningu mismunandi konfekts.
- Gerð trufflna.
- Hjúpun konfekts og frágang.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
Verklegt námskeið þar sem þátttakendur vinna að konfektgerð undir handleiðslu Ólafar. Allt hráefni er á staðnum og innifalið í námskeiðsgjaldi. Þátttakendur taka afraksturinn með sér heim til að njóta yfir hátíðarnar eða gefa öðrum.
Aðrar upplýsingar:
Leiðbeinandi er Ólöf Ólafsdóttir, einn fremsti konditor landsins. Ólöf sigraði keppnina um eftirrétt ársins 2021 og var einn af meðlimum í kokkalandsliðinu sem hlaut tvenn gullverðlaun og hafnaði í 3 sæti samanlagt á Ólympíuleikunum í matreiðslu í febrúar síðastliðinn.
Ólöf gaf út bókina „Ómótstæðilegir eftirréttir“ árið 2023