

Sveppir í íslenskri náttúru
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á íslenskum ætisveppum, sveppatínslu og öruggri nýtingu sveppa til matargerðar, hvort sem um er að ræða byrjendur eða þá sem vilja dýpka þekkingu sína.
Markmið:
Að veita þátttakendum fræðilega og hagnýta þekkingu á íslenskum sveppum, kenna örugga greiningu algengra ætisveppa og efla færni í söfnun, meðhöndlun, geymslu og matreiðslu sveppa.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Sveppi sem lífverur og hlutverk þeirra í náttúrunni.
- Helstu ætisveppategundir sem finna má á Íslandi.
- Greiningu á um 20 tegundum öruggra ætisveppa.
- Útbreiðslu sveppa, búsvæði þeirra og helstu einkenni.
- Algengar eitraðar sveppategundir og hvernig greina má þær frá ætisveppum.
- Verklega sveppagreiningu í náttúrunni undir leiðsögn kennara.
- Hvenær sveppir eru á hentugu þroskastigi til nýtingar.
- Rétta meðferð, hreinsun og verkun sveppa.
- Aðferðir við geymslu og varðveislu sveppa.
- Matreiðslu og nýtingu mismunandi sveppategunda í eldhúsi.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu einkenni um 20 algengra og öruggra ætisveppa á Íslandi.
- Geta greint á milli algengra ætisveppa og helstu hættulegra tvífara þeirra.
- Hafa skilning á búsvæðum og útbreiðslu helstu ætisveppa.
- Geta safnað sveppum með öruggum og ábyrgum hætti.
- Kunna að meðhöndla, hreinsa og ganga frá sveppum til geymslu eða matreiðslu.
- Hafa öðlast aukið öryggi í að nýta villta sveppi til manneldis.
Aðrar upplýsingar:
Kennari er Helena Marta Stefánsdóttir, skógvistfræðingur og sérfræðingur hjá Landi og skógi, sem hefur um árabil kennt námskeið um sveppi og sveppatínslu. Til aðstoðar verður Margrét Guðbrandsdóttir, sem einnig hefur mikla þekkingu á sveppum.
Námskeiðið er eins dags fræðslu- og verklegt námskeið sem fer fram bæði innandyra og úti í náttúrunni. Þátttakendur fá leiðsögn við sveppagreiningu, söfnun og verkun sveppa auk þess að kynnast matreiðslu þeirra og smakka mismunandi tegundir.
Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri og hafa með sér sveppahníf eða vasahníf ásamt körfu eða kassa fyrir sveppasöfnun. Ekki er mælt með notkun plastpoka.
Innifalið í námskeiðsgjaldi eru kennsla, leiðsögn, léttar kaffi- og hádegisveitingar ásamt sveppasmakki.
Athugið að aðeins eru 18 pláss í boði og fyrri námskeið hafa selst upp.