Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í stálsmíði

Námskeið sem styrkir verklega og fræðilega færni til að standast sveinspróf í stálsmíði.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem stefna á að þreyta sveinspróf í stálsmíði og vilja skerpa á helstu verklegum og bóklegum þáttum sem koma fyrir á prófi.

Markmið:

Að efla færni þátttakenda í helstu vinnuaðferðum og tækni stálsmíði ásamt því að undirbúa þá markvisst fyrir sveinspróf.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Verklega færni með teikningar og útflatninga
  • Æfingar í pinnasuðu
  • Æfingar í MIG/MAG-suðu
  • Æfingar í TIG-suðu
  • Æfingar í logsuðu
  • Eldri próf og dæmi

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta lesið og túlkað teikningar og útflatninga
  • Kunna að beita réttum vinnuaðferðum við mismunandi suðuaðferðir (pinna-, MIG/MAG-, TIG-, og logsuðu)
  • Geta sýnt færni í meðhöndlun logsuðuverkfæra
  • Þekkja helstu prófaform og verkefni sem koma fyrir á sveinsprófi
  • Vera betur í stakk búinn til að standast sveinspróf í stálsmíði

Aðrar upplýsingar:

Nemendur eiga að hafa lokið stálsmíðanámi og ferilbók. Nemendur þurfa að vera í hlífðarfatnaði.

Hefst
6. ágúst 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar