
Háskólinn á Bifröst

Straumlínustjórnun
Straumlínustjórnun er námskeið á grunnnámsstigi í endurmenntun Háskólans á Bifröst og veitir 6 ECTS einingar á grunnstigi. Markmið námskeiðsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi að kynna fyrir þátttakendum helstu kenningar og aðferðir sem þróaðar hafa verið á sviði straumlínustjórnunar. Hins vegar að þeir öðlist góðan skilning á verkfærakistu straumlínustjórnunar eins og, 5S, VSM, PDSA og A3 sem og hvað þurfi að vera til staðar til að innleiðing straumlínustjórnunar (LEAN) verði árangursrík og nái fótfestu.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir, s.s. fyrirlestrar, umræður og verkefnavinna.
Um fjögurra stunda staðlota í verður á tímabilinu 17.-20. september en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu.
Kennari námskeiðis er Sigurður Blöndal
Hefst
24. ágúst 2026Tegund
FjarnámVerð
100.000 kr.Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar