Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Grunnnámskeið í stafrænni fatahönnun

Námskeiðið er alhliða grunnnámskeið í stafrænni fatahönnun og fatagerð. Þátttakendur munu skilja og geta beitt stafrænum hönnunarreglum í samhengi við faghönnun í tískuiðnaði. Þeir öðlast grunn í notkun CLO3D hugbúnaðar sem er öflugt hönnunarforrit við gerð stafrænna sniða sem saumuð eru upp sem sýndarfatnaður. Þátttakendur munu læra hvernig þeir geta yfirfært skapandi hugmyndir sínar á raunhæfar þrívíddarflíkur, sem straumlínulagar hönnunarferlið, gerir það auðveldara og skilvirkara og dregur verulega úr umhverfis spori í hönnunarferlinu.

Umsóknarfrestur er til 18. ágúst.

Námskeiðið er kennt í fjarnámi og stendur yfir í 7 vikur. 

Kennari námskeiðis er Björg Ingadóttir.

Hefst
24. ágúst 2026
Tegund
Fjarnám
Verð
125.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar