

Stígðu fram - sigraðu ræðukvíðann
Hræðist þú að standa fyrir framan annað fólk og tala? Langar þig að líða vel við slíkar aðstæður? Á námskeiðinu er tekist á við ræðukvíða og markmiðið er að þú lærir leiðir til að láta þér líða vel að tala fyrir framan allar stærðir af hópum.
Samkvæmt rannsóknum glímir u.þ.b. þriðjungur starfsfólks íslenskra fyrirtækja við svokallaðan ræðukvíða. Ræðukvíði getur háð fólki í vinnunni og í þeirra persónulega lífi. Algengasta birtingamynd félagsfælni er að hræðast að tala fyrir framan aðra. Það getur háð einstaklingum talsvert bæði í starfi og í persónulega lífinu.
Á námskeiðinu er farið í gegnum praktískar æfingar, aðferðir kenndar í ræðutækni, framsögn og framkomu þar sem þátttakendur spreyta sig í öruggum aðstæðum. Gunnar nýtir nám sitt og nærri þrjátíu ára starfsreynslu sem leikari, útvarpsmaður, skemmtikraftur, veislustjóri og fundarstjóri til að fara á skemmtilegan hátt yfir það sem getur hjálpað fólki að hætta að hræðast og líða betur í þessum aðstæðum.