

Fyrstu skref námsefnisgerðar
Langar þig að gefa út eigið námsefni en veist ekki hvar skal byrja? Mikil vöntun er á námsefni fyrir öll skólastig og aukin eftirspurn eftir faglegu og aðgengilegu efni á netinu. Á námskeiðinu „Fyrstu skref námsefnisgerðar - frá hugmynd að fullbúnu verki“ kynnist þú fyrstu skrefum námsefnisgerðar og öðlast margvísleg verkfæri til að hefjast handa.
Hvort sem námsefni er rafrænt eða búið til fyrir prent er í mörg horn að líta. Við skoðum markmið, umfang, aðgengi, hönnun, framsetningu og finnum fjölbreyttar leiðir til að gera útgáfuna að veruleika. Við leikum okkur með liti, form, leturgerðir, skoðum samspil texta og mynda, og finnum fjölbreyttar leiðir til að mæta þörfum ólíkra nemendahópa. Þátttakendur eru hvattir til að vinna að eigin hugmyndum meðan á námskeiðinu stendur með það að markmiði að gefa út fullunna afurð.