

Menntastoðir - Dreifnám
Um námið
Menntastoðir eru fyrir þig sem vilt byggja upp traustan grunn í bóklegu námi og undirbúa þig fyrir næstu skref í menntun. Námið hentar sérstaklega vel fólki sem stefnir á undirbúningsdeildir háskóla, vill ljúka framhaldsskóla eða efla færni sína í almennum bóklegum greinum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Í náminu færðu þjálfun og verkfæri sem styðja þig í áframhaldandi námi, meðal annars í:
- námstækni og sjálfstæðum vinnubrögðum
- samskiptum og samstarfi
- almennum bóklegum greinum eins og íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði
- tölvu- og upplýsingatækni
- heimildavinnu og skipulagðri verkefnavinnu
Námsráðgjöf
Námsráðgjafi hefur samband við þig þegar þú hefur sótt um námið en þér er líka velkomið að panta tíma hjá námsráðgjafa áður en þú sækir um ef þú ert ekki alveg viss hvort námið henti þér. Þú greiðir ekkert fyrir tíma hjá námsráðgjafa. Smelltu hér til að bóka tíma hjá námsráðgjafa
Skipulag náms
Námið er skipulagt með það í huga að auðvelt sé að samræma það vinnu og daglegu lífi. Kenndur er einn áfangi í einu og nemendur hlusta á fyrirlestra á þeim tímum sem þeim hentar á netinu, verkefnatímar eru svo einu sinni í viku á þriðjudögum frá kl. 16:30–20:30. Einu sinni í mánuði er svo kennsla á fimmtudegi kl. 16:30–19:30 og föstudegi kl. 15:00–19:00. Nemendur geta valið að mæta í tíma í húsnæði Fræðslunetsins á Selfossi eða á Teams. Athugið að námið fer allt fram á íslensku.
Hægt er að hefja nám í hvert skipti sem nýr áfangi byrjar svo ef það hentar þér ekki að byrja 12.janúar þá getur þú byrjað í febrúar þegar næsti áfangi hefst. Hægt er að klára námið á tveimur önnum ef byrjað er 12.janúar.
Með fjölbreyttum verkefnum, reglulegri endurgjöf og samþættingu námsgreina byggir þú upp námsvenjur, öryggi og færni sem nýtist til lengri tíma í námi.
Styrkir til náms
Við hvetjum alla til að skoða hvort þeir eigi rétt á styrk fyrir náminu frá stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun.