Fræðslunetið, símenntun á Suðurlandi
Fræðslunetið, símenntun á Suðurlandi
Fræðslunetið, símenntun á Suðurlandi

Félagsliðagátt - Dreifnám

Um námið

Félagsliðagátt er námsbraut fyrir þá sem starfa við umönnun aldraðra, fatlaðra eða í heimaþjónustu og vilja bæta við sig þekkingu sem nýtist strax í starfi. Námið sameinar fræði og verklega nálgun á aðgengilegan hátt og styður þig í að byggja upp fagmennsku, öryggi og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Í náminu færðu þekkingu og verkfæri sem styrkja þig í daglegum störfum, meðal annars í:

  • faglegum og virðingarríkum samskiptum
  • skilningi á ólíkum aðstæðum fólks og mikilvægi umhyggju og virðingar
  • öldrunarferli og þeim breytingum sem fylgja hækkandi aldri
  • uppbyggingu og hlutverki félagslegrar þjónustu

Námsráðgjöf

Námsráðgjafi hefur samband við þig þegar þú hefur sótt um námið en þér er líka velkomið að panta tíma hjá námsráðgjafa áður en þú sækir um ef þú ert ekki alveg viss hvort námið henti þér. Þú greiðir ekkert fyrir tíma hjá námsráðgjafa. Smelltu hér til að bóka tíma hjá námsráðgjafa

Skipulag náms

Námið er skipulagt með það í huga að auðvelt sé að samræma það vinnu og daglegu lífi. Þú hlustar á fyrirlestra heima og tekur svo þátt í verkefnatímum einu sinni í viku á miðvikudögum frá kl. 17:15–20:15. Nemendur geta valið að mæta í tíma í húsnæði Fræðslunetsins á Selfossi eða á Teams.

Með því að taka einn áfanga í einu verður námið skýrt, skipulagt og aðgengilegt. Þú tekur virkan þátt í verkefnum og umræðum, færð reglulega endurgjöf og byggir þannig upp bæði faglega hæfni og aukið sjálfstraust. Hver áfangi stendur yfir í 3–5 vikur. Athugið að námið fer allt fram á íslensku.

Hægt er að hefja nám í hvert skipti sem nýr áfangi byrjar svo ef það hentar þér ekki að byrja 13.janúar þá getur þú byrjað í febrúar þegar næsti áfangi hefst. 

Með fjölbreyttum verkefnum, reglulegri endurgjöf og samþættingu námsgreina byggir þú upp námsvenjur, öryggi og færni sem nýtist til lengri tíma í námi.

Styrkir til náms

Við hvetjum öll til að skoða hvort þau eigi rétt á styrk fyrir náminu frá stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun.

Hefst
13. jan. 2027
Tegund
Fjarnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar