

Íslenska 4 fjarnám | Icelandic 4 online (A2.2)
Um námskeiðið
Námskeiðið Íslenska 4 er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumáls, það er lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 4 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Áherslur
- Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.
- Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
- Þú kynnist og notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.
- Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
- Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.**
- Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Fyrir hverja
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2 og 3 (120 klukkustundir) eða sambærileg þekking.
Á fjórða stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.