Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Heit vinna

Vinna með eld og neista krefst þekkingar – tryggðu öryggi með réttu verklagi og vinnuleyfi.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er fyrir iðnaðarmenn, verkstjóra, öryggisverði og alla sem koma að framkvæmd eða eftirliti með heitri vinnu – t.d. logsuðu, rafsuðu, slípun, bræðslu eða vinnu með gas.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist skýran skilning á hættum tengdum heitri vinnu og hvernig má fyrirbyggja slys með réttu áhættumati, vinnuleyfum og brunavörnum.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Logsuðu, rafsuðu og bræðslu
  • Slípun og önnur heit verk
  • Eldvarnir og slysasaga
  • Lög og reglugerðir um vinnuleyfi
  • Slökkvitæki og viðbrögð

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Skilja áhættuþætti tengda heitri vinnu
  • Geta beitt viðeigandi öryggisráðstöfunum
  • Kunna að útbúa og meta vinnuleyfi
  • Þekkja eldvarnir og notkun slökkvitækja

Aðrar upplýsingar:

Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að tölvu með nettengingu til að taka þátt í fjarnámi. Námskeiðið fer fram í gegnum Google Meet.

Hefst
14. sept. 2026
Tegund
Fjarnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar