Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Persónusniðnar lausnir í auglýsingaprenti

Hvernig eru stafrænar lausnir, persónusniðin framleiðsla og textílprentun að umbreyta auglýsingaprenti? Haldið verður áfram umræðum um nýjustu þróun og tæknilausnir.

Fyrir hverja:

Þessi fyrirlestur hentar öllum sem starfa við eða hafa áhuga á prentiðnaði, skiltagerð, merkingum, textílprentun og umbúðagerð og vilja fylgjast með nýjustu straumum og nýta þá í sinni starfsemi.

Markmið:

Markmið fyrirlestursins er að kynna hvernig stafrænar lausnir, persónusniðin framleiðsla og textílprentun eru að umbreyta auglýsingaprenti.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Persónumerkingar og sérsniðnar lausnir í prentun
  • Þróun í stafrænu prenti og breyttar kröfur markaðarins
  • Nýjungar í textílprentun og notkunarsvið hennar
  • Samspil hönnunar, gagna og framleiðslu
  • Dæmi um skapandi og nýstárlega notkun

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Skilja þróun í persónusniðnum prentlausnum
  • Þekkja möguleika textílprentunar
  • Geta tengt stafræna þróun við eigin starfsemi
  • Vera betur í stakk búinn til að nýta nýsköpun í verkefnum

Aðrar upplýsingar:

Efnið byggir á samantekt Sæmundar Freys Árnasonar á nýjungum sem kynntar voru á alþjóðlegu FESPA ráðstefnunni í Barcelona, þar sem fremstu sérfræðingar heims í prent-, merkinga- og sjónrænum samskiptum kynntu nýjustu þróun.

Hefst
2. sept. 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar