Brosmildu og stilltu börnin
Á námskeiðinu fjallar Ragnheiður Björg Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur, um hvernig hægt sé að greina tengslahegðun barna sem búa við hættu. John Bowlby lýsti tengslum sem tilfinningalegum böndum sem hefðu áhrif á hegðun frá vöggu til grafar. Til að geta skilið börn verður að líta til frumtengsla þeirra og umönnunaraðila. Mikilvægt er að allt fagfólk sem kemur að starfi með börnum sé fært um að lesa í svipbrigði, líkamlegt atferli, yrta og óyrta tjáningu barna, svo unnt sé að skima fyrir hættu í tengslasamböndum þeirra.
Á námskeiðinu verður fjallað um grunn tengslakenninga og þrjú matstæki, Dynamic-Maturational Model of Attachment and Adaption, DMM módelsins. Matstæki DMM módelsins leggja áherslu á að skima fyrir hættu í tengslasamböndum barna á ólíkum aldursskeiðum með umönnunaraðilum. Rýnt verður í ljósmyndir af börnum sem búa við hættu, ásamt því sem líkamlegum einkennum verða gerð skil.