

Ábyrgðarstjóri suðumála (RWC)
Fyrir hverja:
Stjórnendur, verkstjóra og þá sem bera ábyrgð á gæðakerfum og suðumálum. Hentar vel þeim sem bera eða munu bera ábyrgð á umsjón suðuvinnu, og þurfa breiða, hagnýta undirstöðu í efnisfræði, aðferðum, verklýsingum, vottun, skoðun og gæðastjórnun.
Markmið:
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur þá þekkingu sem þarf til að starfa sem ábyrgðarstjóri suðumála, skilja hegðun efna, velja og hanna suðuaðferðir á öruggan hátt, útbúa suðuferla sem standast kröfur, votta suðumenn, skoða og meta suðugæði, og beita EN ISO 3834 og EN 1090.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
Dagur 1 — Efnisfræði málma og suðuhæfni
Markmið: Að byggja upp hagnýtan skilning á því hvernig þau efni sem oftast koma fyrir í málmsmíði hegða sér við suðu, og hvernig eiginleikar þeirra ráða suðuhæfni.
- Flokkun og eiginleikar kolefnis- og lágblendistáls
- Flokkun og eiginleikar ryðfrís stáls (austenít, ferrít, dúplex)
- Grunnmálmfræði annarra algengra suðuefna
- Áhrif hitainngjafar, kælihraða og hitaáhrifasvæðis (HAS) á örbyggingu
- Þættir sem hafa áhrif á suðuhæfni: kolefnisjafngildi, vetnissprungur, forhitun og millilagshiti
- Algengir málmfræðilegir gallar og orsakir þeirra
Dagur 2 — Suðuaðferðir, hönnun og öryggi
Markmið: Að veita yfirsýn yfir helstu suðuaðferðir, öryggis- og heilbrigðisatriði fyrir málmsmíði og suðuvinnu, og hönnunarreglur á bak við stálvirkjaframkvæmdir.
- Öryggis- og heilbrigðiskröfur sem gilda sérstaklega um málmsmíði og suðuvinnu
- Yfirlit yfir suðuaðferðir (MMA, MIG/MAG, TIG, FCAW og fl.)
- Meginreglur burðarþolshönnunar stáls í tengslum við suðuaðferðir
- Lestur og túlkun á suðuteikningum og suðutáknum
- Val á hentugum aðferðum og hönnun fyrir tiltekið verkefni
Dagur 3 — Suðuferlislýsingar og gerð WPS
Markmið: Að þjálfa hagnýta færni sem þarf til að útbúa suðuferlislýsingu (WPS) sem uppfyllir evrópska staðla.
- Uppbygging og tilgangur suðuferlislýsingar (Welding Procedure Specification, WPS)
- Bráðabirgða-WPS (pWPS) og vottunarskrá suðuferlis (Welding Procedure Qualification Record, WPQR)
- Kröfur EN ISO 15609 og EN ISO 15614 um vottun suðuferla
- Grunnbreytur og aukabreytur í suðuferli
- Verkleg æfing: gerð WPS sem stenst kröfur fyrir tiltekna tengingu og efni
Dagur 4 — Vottun, skoðun og skaðlausar prófanir (NDT)
Markmið: Að fara yfir kröfur um vottun suðumanna og ábyrgðaraðila, þær skoðunaraðferðir sem notaðar eru til að greina og meta suðugalla og verklag.
- Vottun suðumanna og suðuvélstjóra skv. EN ISO 9606 / EN ISO 14732
- Flokkun suðugalla og verklags. Viðmiðunarmörk á gæðum vinnu.
- Sjónskoðun (VT) sem grunnskoðunaraðferð
- Yfirlit yfir skaðlausar prófanir (NDT): Litaprófun (PT), segulagnaprófun (MT), ómskoðun (UT) og geislaskoðun (RT) — meginreglur og dæmigerð notkun
- Hlutverk skaðlausra prófana innan víðtækara gæðaeftirlits
Dagur 5 — EN ISO 3834, EN 1090 og umsjón með suðumálum
Markmið: Að draga saman efni vikunnar innan ramma EN ISO 3834 og EN 1090, og fara yfir verkefni og ábyrgð ábyrgðarstjóra suðumála.