Miðeind
Miðeind
Miðeind

Sérfræðingur í sölu og stafrænni markaðssetningu

Miðeind, leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki á sviði íslenskrar máltækni og gervigreindar, leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í stöðu sérfræðings í sölu og stafrænni markaðssetningu. Um er að ræða fullt starf en þó er hægt að semja um lægra starfshlutfall, t.d. með fram námi Tilvalið fyrir háskólanema eða nýútskrifaða einstaklinga sem hafa mikinn drifkraft og vilja taka þátt í að móta sölu- og markaðsstefnu hjá fyrirtæki í vexti.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og framkvæmd stafrænnar markaðsáætlunar
  • Umsjón með samfélagsmiðlum fyrirtækisins
  • Greining á árangri markaðsaðgerða og tillögur að úrbótum
  • Gerð markaðsefnis, s.s. bloggfærslna, myndbanda og annars efnis
  • Umsjón með sölustarfsemi og samskiptum við viðskiptavini

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólanám í markaðsfræði, viðskiptafræði eða sambærilegum greinum (yfirstandandi eða lokið)
  • Brennandi áhugi á stafrænni markaðssetningu og nýjustu tækni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar í starfi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni í ræðu og riti
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Reynsla af sölustörfum
  • Þekking á hugbúnaðargeiranum er kostur

 

Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

  • Krefjandi og fjölbreytt starf hjá framsæknu fyrirtæki
  • Tækifæri til að taka þátt í spennandi verkefnum á sviði máltækni og gervigreindar
  • Sveigjanlegan vinnutíma og möguleika á hlutastarfi eða fullu starfi að sumri loknu
  • Samkeppnishæf laun og góða vinnuaðstöðu
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur3. maí 2024
Laun (á mánuði)750.000 - 850.000 kr.
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Fiskislóð 31, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.Email markaðssetningPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsrannsóknirPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar