Landspítali
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að veitt sé framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 30 þúsund íbúa og um um 2500 starfsfólk sem sinna fjölbreyttum störfum á um 70 starfsstöðvum um allan bæ. Mannauðurinn er okkur dýrmætur. Lögð er áhersla á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Við viljum vera áhugaverður og góður vinustaður og árangur okkar er undir reyndu og hæfileikaríku fólki kominn. Við leggjum áherslu á að skapa starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að efla þekkingu sína, hefur tækifæri til þróunar og fái hvatningu til að sýna frumkvæði og njóta sín í starfi sem skilar sér í aukinni starfsánægju og góðri þjónustu við bæjarbúa. Við erum heilsueflandi vinnustaður og viljum að öllum líði vel í vinnunni og bæði stjórnendur og starfsfólk leggja sitt að mörkum við að ýta undir og skapa sem best vinnuumhverfi á öllum okkar starfsstöðvum. Ef þú hefur áhuga á að bætast í hóp starfsmanna hjá Hafnarfjarðarbæ þá hvetjum við þig til að senda inn umsókn.
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu. Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar. Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu. Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu. Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín. Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Íslenska gámafélagið
Íslenska gámafélagið er framúrskarandi vinnustaður, þar sem metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. Íslenska Gámafélagið var fyrst íslenskra fyrirtækja til að hljóta jafnlaunavottun. Leitast er við að tryggja starfsmönnum sem best starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna í starfi. Gildin okkar eru gleði, áreiðanleiki og metnaður og við höfum þau að leiðarljósi í öllum okkar störfum. Íslenska gámafélagið hefur fengið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2016.
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum. Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og áhugamál. Hrafnista leitast við að ráða, efla og halda hæfu starfsfólki. Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn, Hlökkum til að heyra frá þér.
CCP Games
CCP is a leading independent game developer that has been praised for its artistry, technology and game design that facilitates emergent behaviour, empowering players with compelling means of self-expression. Founded in 1997 on the principle of pushing the envelope and breaking new ground on all levels, CCP is on a mission to create virtual worlds more meaningful than real life. With the launch of EVE Online in May 2003, CCP established itself as a pioneer of cutting edge massively multiplayer games, winning numerous awards and receiving critical acclaim worldwide. CCP is headquartered in Reykjavik, Iceland, and has additional studios in London and Shanghai. For more information, visit www.ccpgames.com.
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir. Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.
The Reykjavik EDITION
The World’s Hottest Hotel Brand” -Forbes WE ARE HIRING FOR THE SUMMER 2024- join our team and create a magical experience. EDITION is a new, unique, original experience created through a partnership between world renowned boutique hotelier Ian Schrager and global hospitality leader, Marriott International. Dare to follow your passions. Apply now or contact us at careers.rek@editionhotels.com to learn more about The Reykjavik EDITION. The Reykjavik EDITION The Reykjavik EDITION brings the first 5-star modern luxury experience to one of the world’s greenest, cleanest and safest capitals. Located in the heart of Reykjavik by Old Harbor port, the hotel is few steps away from Harpa Conference center and Laugavegur Street. The Reykjavik EDITION features 253 guest rooms including 25 suites with iconic views of mountains and the ocean. The hotel’s design includes 2 restaurants; a specialty restaurant with an outdoor terrace between the port and Harpa and a rooftop venue overlooking Reykjavik. The Reykjavik EDITION features a signature cocktail bar and a night club, custom designed spa with 3 treatment rooms, state-of-the-art-gym and 552 sqm of event space with a ballroom, board room and 3 meeting studios. EDITION Hotels combine the visionary genius of boutique hotelier Ian Schrager, the service delivery of a world-class luxury hotel, and the global reach of Marriott International to create an entirely new experience in the world of hospitality. Our hotels are stunning microcosms of the world's top cities, featuring the finest in dining, entertainment, nightlife, and service to create an enchanting experience that makes your spirit soar! But to create this magical experience, we need you. We invite you to join us today.
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis- og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er gífurlega öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins. Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust. Heiti fyrirtæksins í Fyrirtækjaskrá er Öryggismiðstöð Íslands hf. Kennitala félagsins er 410995-3369.
Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi. Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri. Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma. Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans. Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál. Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana. Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.
Rapyd Europe hf.
Rapyd has unified payments, payouts and fintech on one worldwide platform, and we’re assembling the world’s best team to liberate global commerce. With offices in Tel Aviv, Amsterdam, Singapore, Iceland, London, Dubai, Hong Kong, and the U.S., the opportunities at Rapyd are limitless. We believe in straight talk, quick decisions, strong execution and elegant solutions. Rapyd is where hard work pays off and careers take off. Join us and let’s build the future of fintech together.
Tækniskólinn
Tækniskólinn var stofnaður árið 2008 þegar Iðnskólinn í Reykjavík og Fjöltækniskólinn sameinuðust. Skólinn er stærsti framhaldskóli landsins og byggir á langri og merkri sögu sem tengist atvinnulífi landsins á marga vegu.
JYSK
JYSK er hluti af alþjóðlegu verslunarkeðjunni JYSK. Fyrsta verslunin var opnuð á Íslandi árið 1987 af þeim Jákup Jacobsen og Jákupi N. Purkhús og hét þá Rúmfatalagerinn. Í dag eru verslanir JYSK 7 talsins ásamt vefverslun og vöruhúsi. Verslanir eru staðsettar á Smáratorgi, Skeifunni, Granda, Bíldshöfða, Selfossi, Reykjanesbæ og Akureyri. JYSK hefur verið leiðandi á lágvöruverðsmarkaðnum á Íslandi frá upphafi. JYSK hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða frábært vöruúrval, góða þjónustu ásamt því að vera ávallt með góð tilboð.
Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land. Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár. Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur. Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.
Íslandshótel
Íslandshótel reka 18 hótel á Íslandi — Hótel Reykjavík Grand, Hótel Reykjavík Centrum, Hótel Reykjavík Sögu auk Fosshótelanna sem staðsett eru hringinn í kringum landið. Hjá Íslandshótelum starfa þegar mest lætur um 800 manns og býður fyrirtækið upp á rúmlega 1.700 herbergi. Íslandshotel vinnur að því markmiði að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar eins og kostur er. Hótel Reykjavík Grand er fyrsta hótel Íslandshótela til að hljóta Svansvottun, vottun Norræna umhverfismerkisins samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir hótel. --- Islandshotel are a chain of 18 hotels around Iceland - Hotel Reykjavik Grand, Hotel Reykjavik Centrum, Hotel Reykjavik Saga along with Fosshotels around the country. Over the high season there are over 800 team members working with Islandshotel.
Apótekarinn
Apótekarinn er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Heilsa og heilbrigði er sérsvið fyrirtækisins og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með því að bjóða lyf og aðrar heilsutengdar vörur. Í Apótekaranum færðu lægra verð, persónulega, örugga og faglega þjónustu.
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu. Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum.