IKEA
IKEA
IKEA

Vilt þú vaxa með okkur? Fjölbreytt störf í boði!

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í fjölhæfan og fjölbreyttan hóp starfsfólks IKEA. Starfsemi fyrirtækisins býður upp á skapandi og skemmtileg störf og mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi - með jákvæðni og drifkraft að leiðarljósi.

Í dag starfa um 470 manns hjá IKEA, í lifandi alþjóðlegu umhverfi. Þessi stóri samheldni hópur vinnur daglega að framgangi hugmyndafræði IKEA sem er "að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flest".

Kynntu þér málið á vef okkar https://www.ikea.is/umsokn

Fríðindi í starfi
  • Skapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi
  • Skemmtilegir samstarfsfélagar
  • Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti og salatbar
  • Fríir ávextir og hafragrautur alla daga
  • Árlegur heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun
  • Afsláttur af IKEA vörum
  • Samgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu
  • Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum
  • Aðgengi að sumarbústaði til einkanota

Hlökkum til að heyra frá þér!

Auglýsing stofnuð2. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Kauptún 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar