ÍSOR

ÍSOR

Vinnustaðurinn
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
ÍSOR veitir ráðgjafarþjónustu og annast grunnrannsóknir á náttúrufari og jarðrænum auðlindum ásamt kennslu í jarðhitafræðum. ÍSOR er meðal þekktustu ráðgjafafyrirtækja í heiminum á sviði rannsókna og þróunar í jarðhita og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem slíkt. ÍSOR starfar samkvæmt gæðavottun ISO 9001:2015. Kjarnastarfsemi ÍSOR er víðtæk ráðgjöf á sviði jarðvísinda með áherslu á jarðhita. Einnig sinnir ÍSOR rannsóknum, kennslu og fræðslu í jarðvísindum ásamt því að hýsa starfsemi Jarðhitaskóla GRÓ sem hefur það að markmiði að byggja upp þekkingu og getu í þróunarlöndum til sjálfbærrar nýtingar vistvænna jarðvarmaorkugjafa. Starfsfólk ÍSOR myndar þverfaglegan samstarfshóp sérfræðinga á sviði jarðvísinda og verkfræði þar sem faglegur áhugi og samvinna eru leiðarljós. Áhersla er lögð á jöfn tækifæri starfsfólks, ánægða og árangursmiðaða liðsheild og framþróun. Metnaður ÍSOR er að vera í fararbroddi þekkingar á sviði sjálfbærrar nýtingar jarðrænna auðlinda og virðisskapandi lausna sem miða að því að koma jörðinni og fólki til góða. Aðalstöðvar ÍSOR eru í Kópavogi og starfsstöð er á Akureyri.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Jafnvægisvog FKA

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni með það að markmiði að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir.

ISO 9001 - Gæðastjórnunarstaðall

ISO9001 er alþjóðlega viðurkenndur gæðastjórnunarstaðall.
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur

51-200

starfsmenn

Nýjustu störfin

Engin störf í boði