Austurkór
Austurkór
Austurkór

Viltu koma og starfa með geggjuðum hóp í Austurkór

Leikskólinn Austurkór er sex deilda leikskóli á yndislegum stað við Vífilstaðahlíð. Í leikskólanum eru 100 börn á aldrinum eins – sex ára.
Einkunnarorð Austurkórs eru samvinna, lýðræði og atorka.
Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, liðsheild, jákvæð samskipti og lausnamiðaða hugsun.

Athygli er vakin á því að Kópavogsbær býður upp á 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla, aukinn sveigjanleika í opnunartíma leikskóla og takmarkanir í dymbilviku, milli jóla og nýárs og vetrarfríum. Hér má sjá meira um sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla og aukinn sveigjanleika Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogur

Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst, eða eftir samkomulagi.

Heimasíðan okkar er Leikskólinn Austurkór

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir leiðsögn leikskólastjóra.
  • Tekur þátt í faglegu starfi deildarinnar.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna á deildinni.
  • Sinnir verkefnum er varða uppeldi og menntun barna í leikskólanum.
Menntunar- og hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.

Sjálfstæð vinnubrögð. 

Lipurð og sveiganleiki í samskiptum.

Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.

Brennandi áhugi á starfi með börnum.

Reynsla af leikskólastarfi æskileg.

Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. Evropski-tungumalaramminn.pdf

Ef ekki fæst einstaklingur með leikskólakennaramenntun kemur til greina að ráða einstakling með aðra háskólamenntun eða leiðbeinanda. 

Fríðindi í starfi

Vinnustytting sem felst í styttri vinnutíma og fríi í vetrarfríi, páskafríi og jólafríi.

Frítt í sund eftir þriggja mánaða samfellda vinnu.

Líkamsræktarstyrkur frá Kópavogsbæ.

Frír morgunmatur, hádegismatur og nónhressing.

Реклама створена 18. September 2026
Кінцевий термін подання заявки16. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Austurkór 1, 203 Kópavogur
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ЧесністьPathCreated with Sketch.КреативністьPathCreated with Sketch.ВикладанняPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПунктуальністьPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Догляд (діти/люди похилого віку/інваліди)PathCreated with Sketch.Робота під тискомPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи